Golf og Umgengnisreglur

image

Ósláanlegur bolti

Orðið ósláanlegur telja margir að vísi til þess að boltinn þurfi raunverulega að vera óleikhæfur og ekki hægt með nokkru móti að slá hann. En það er hins vegar ekki rétt, þar sem það er nægjanlegt að leikmaður telji sig ekki geta leikið boltanum. Álit annara á leikhæfi hans skiptir engu. Hvort leikmaður ákveður að taka lausn m.v. ósláanlegan bolta er því algerlega undir honum komið og bara undir honum komið. Enginn annar getur ákveðið að boltinn sé ósláanlegur og að leikmaður þurfi að taka viðkomandi lausn.
Við skulum hafa í huga að ef leikmaður ákveður að boltinn sinn sé ósláanlegur þá er hann að taka á sig víti. Dómari móts getur aldrei úrskurðað hvort bolti sé ósláanlegur eða ekki.

Ef bolti er dæmdur óslánlegur (unplayable) má leikmaðurinn sjálfur ákveða það hvar sem er á vellinum nema í vítissvæði (rauðu/gulu). Þá færðu 1 vítahögg og hefur þrjá möguleika samkvæmt reglu 19:

  1. Slá aftur þaðan sem síðasta högg var slegið
    – farið aftur á fyrri stað og slá nýjan bolta.
  2. Droppa aftur á línu
    – fara eins langt aftur og þú vilt á línu frá holu í gegnum staðinn þar sem boltinn lá.
  3. Droppa innan tveggja kylfulengda
    – frá staðnum þar sem boltinn lá, ekki nær holu.

Í glompu

Ef boltinn er í glompu gilda sömu valkostir, en boltinn þarf yfirleitt að vera droppaður inni í glompunni.
Það er þó sérstakur aukakostur:

  • fara út úr glompunni á línu aftur frá holu gegn 2 vítahöggum.

Mikilvægt

  • Þú þarft ekki samþykki annarra til að dæma boltann óslánlegan.
  • Þetta er oft notað þegar bolti liggur við tré, stein, runna eða í mjög slæmri legu


image

Að bæta legu bolta

Ein algengustu mistökin sem menn gera er að þegar bolti liggur í þykku grasi eða lítill jarðvegsójafna er fyrir aftan boltann þá færa þeir grasið frá boltanum eða stíga á ójöfnunina og jafna þar með jarðveginn fyrir aftan boltann þannig að kylfan lendi ekki í grasinu eða ójöfnuninni þegar boltinn er sleginn. En með þessu hafa menn bætt legu boltans og áunnið sér almenna vítið, þ.e. 2 högg í víti í höggleik eða holutap í holukeppni (nema þegar þetta er gert á teig áður en teighögg er slegið).
Jafnframt eiga menn það til að merkja ekki legu bolta síns þegar þeir lyfta honum til að bera kennsl á hann, ýta svo grasi frá eða þrýsta niður jarðveg með hendinni þegar þeir leggja hann aftur eða reyna að láta hann liggja ofar í grasi en hann lá áður en honum var lyft. Reglurnar gera ráð fyrir að merkja verði legu bolta áður en honum er lyft og setja verður hann síðan á sama stað aftur eftir að kylfingur hefur skoðað boltann án þess að bæta umhverfi hans. Ef bolti er ekki merktur þá hlýtur leikmaður 1 högg í víti, en ef kylfingur setur ekki boltann aftur eins og hann var og bætir legu bolans þá hlýtur hann almennt víti.
 
 

 

image

Upplýsingar um fjarlægð

Eins og margir kylfingar vita (þó ekki allir því miður) þá er bannað að veita ráð við golfleik eða að biðja um ráð. Hér er átt við allt það sem getur haft áhrif á það hvaða kylfu menn velja, hvernig högg þeir slá o.s.frv. Hins vegar eru upplýsingar um fjarlægðir taldar almennar upplýsingar eins og t.d. upplýsingar um staðsetningu holu, legu brautar, hvar glompur eru o.s.frv. sem heimilt er að leita upplýsinga um.
Þess vegna er það heimilt að spyrja leikmenn um fjarlægðri og veita upplýsingar um fjarlægðir, jafnvel þótt nota þurfi fjarlægðamælir til að finna út úr fjarlægðinni.
image

Að verða boltalaus áður en leik er lokið

Það er ansi leiðinlegt að verða uppiskroppa með bolta í miðjum leik, þar sem maður hefur týnt fleiri boltum en maður reiknaði með. En það er þó ekki lok leiksins, heldur má leikmaður fá lánaða(n) bolta frá hverjum sem er, þar með talið öðrum leikmönnum.
Það gildir ekki sama regla um boltana og kylfurnar þar sem aðrir leikmenn mega ekki lána öðrum kylfur frá sér. Þannig getur leikmaður fengið lánaðan bolta frá leikmanni í sama holli, eða úr öðru holli og jafnframt má hann fá bolta lánaðan frá áhorfanda eða þeim sem á leið framhjá ef þeir eru með bolta til að lána.